Njarðvíkingar eru bikarmeistarar í stúlknaflokki eftir 52-47 spennusigur á Hamri/FSu í bikarúrslitaleik liðanna í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Lokaspretturinn var æsispennandi þar sem Njarðvíkingar reyndust þrautgóðir á raunastund. Andrea Björt Ólafsdóttir var valin besti maður leiksins en þegar í harðbakka sló steig hún rækilega upp og leiddi Njarðvíkinga til sigurs með 11 stig og 15 fráköst. Hjá Hamri/FSu var Marín Laufey Davíðsdóttir í sérflokki með 18 stig og 24 fráköst en rimma hennar við Andreu í Njarðvíkurliðinu var stórskemmtileg allan leikinn. Njarðvíkingar fundu því sinn fyrsta bikarmeistaratitil þessa helgina en þetta var fjórði bikarúrslitaleikurinn sem félagið spilaði, fyrstu þrír töpuðust, fjórði vannst og sá fimmti er að hefjast sem er slagur UMFN og KR í drengjaflokki.
Liðin mættu með hverja varnaryfirlýsinguna á fætur annarri í upphafi leiks, svæðisvarnir og pressur og allir uppi á tánum. Eitthvað skolaðist sóknarleikurinn til fyrir vikið en Eyrún Líf Sigurðardóttir gerði fimm fyrstu stig Njarðvíkinga í leiknum og staðan 5-6 fyrir Hamar/FSu. Aníta Carter Kristmundsdóttir fór af velli í fyrsta leikhluta í Njarðvíkurliðinu meidd á ökkla og spilaði ekki meir í fyrri hálfleik hjá grænum. Henni til heilla var slökkviliðsmaðurinn og faðir hennar Kristmundur Carter á staðnum og bjó að ökklameiðslum hennar.
Andrea Björt Ólafsdóttir og Marín Laufey Daníelsdóttir tókust á í teignum, skemmtilegt einvígi þar á ferð en með hverri mínútunni í fyrsta leikhluta dró af Hamri/FSu og Njarðvík náði 15-6 forskoti þar sem Marín Hrund Magnúsdóttir setti niður flautuþrist eftir stoðsendingu frá Eyrúnu Líf Sigurðardóttur.
Hamar/FSu var ekki af baki dottið þrátt fyrir linar lokamínútur í fyrsta leikhluta heldur opnuðu þær annan leikhluta með látum, 7-0 rispa og staðan orðin 15-13 áður en Guðlaug Björt Júlíusdóttir náði að skora eitt stig fyrir Njarðvík af vítalínunni eftir fjögurra mínútna leik í öðrum leikhluta.
Elísabet Sigríður Guðnadóttir tók skömmu síðar 4-0 rispu fyrir Njarðvíkinga og kom grænum í 20-14 og Ásta Magnhildur Sigurðardóttir lokaði fyrri hálfleik með látum fyrir Njarðvík er hún reif í sig sóknarfrákast og skoraði með flautukörfu fyrir Njarðvík í teignum og grænar leiddu 28-18 í hálfleik.
Eyrún Líf Sigurðardóttir var stigahæst í Njarðvíkurliðinu í hálfleik með 7 stig og 5 fráköst en hjá Hamri/FSu var Marín Laufey Davíðsdóttir með 9 stig og 15 fráköst.
Aníta Carter var mætt aftur í slaginn hjá Njarðvík í síðari hálfleik, kyrfilega bundin á ökkla. Njarðvíkingar héldu Hamri/FSu vel frá sér framan af leikhlutanum og leiddu 37-27 þegar Hamar/FSu tók ágæta rispu og lokuðu leikhlutanum með 4-0 dembu og staðan því 38-32 fyrir Njarðvík fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Hamar/FSu byrjaði fjórða leikhluta af krafti og eftir stutta stund náðu þær að minnka muninn í 42-41 þegar Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði eftir að hafa tekið sóknarfrákast af sínu eigin skoti. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka fékk Marín Laufey Davíðsdóttir sína fjórðu villu í liði Hamars/FSu og varð að fara varlega en leikur liðsins snérist í kringum Marín sem var frábær í dag. Hamar/FSu jafnaði svo metin í 42-42 þegar fjórar og hálf mínúta var eftir.
Tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum þegar Hamar/FSu missti Kristrúnu Rut af velli með fimm villur en við þetta hófst magnaður lokasprettur. Guðlaug Júlíusdóttir kom Njarðvík í 45-42 en Hamar/FSu jafnaði með þriggja stiga körfu frá Jónu Guðrúnu Baldursdóttur.
Hér tók Andrea Björt til sinna ráða í Njarðvíkurliðinu og gerði fjögur Njarðvíkurstig og grænar leiddu 49-47 þegar mínúta var til leiksloka. Hamar/FSu fékk vissulega sín tækifæri á því að hrifsa að sér sigurinn en þær fóru illa með boltann, Njarðvíkingar stóðu vaktina vel í vörninni og lamdar áfram af Andreu lönduðu þær góðum 52-47 sigri í bráðskemmtilegum leik.
Njarðvík:
Andrea Björt Ólafsdóttir – 11 stig og 15 fráköst
Guðlaug Björt Júlíusdóttir – 12 stig og 6 fráköst
Hamar/FSu:
Marín Laufey Davíðsdóttir – 18 stig, 24 fráköst og 3 stoðsendingar
Dagný Lísa Davíðsdóttir – 11 stig og 9 fráköst
Karfan.is óskar Njarðvíkingum til hamingju með bikartitilinn
Mynd og umfjöllun/ [email protected]



