Njarðvíkingar eru bikarmeistarar í drengjaflokki þetta árið eftir 102-92 sigur á KR í úrslitaleik liðanna í Vodafonehöllinni. Maciej Baginski var valinn besti maður leiksins með 42 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar en um bráðskemmtilegan leik var að ræða. Eins og lokatölurnar gefa til kynna þá leiddist mönnum ekkert í sóknarleiknum.
Maciej Baginski var heitur í upphafi leiks og smellti snemma þremur þristum yfir svæðisvörn KR-inga og grænir leiddu 16-13 fyrir vikið. Varnarleikurinn var ekkert sérstakt áhersluefni hjá liðunum í fyrri hálfleik en það voru röndóttir sem leiddu 19-22 eftir fyrsta leikhluta. Þó varnarleikurinn hafi ekki verið fyrirferðamikill voru liðin að hitta vel og leikurinn opinn og skemmtilegur.
Elvar Friðriksson jafnaði fyrir græna 22-22 með þriggja stiga körfu en KR var ekkert á þeim buxunum að breyta til í svæðisvörninni þó þristarnir væru að komast fram hjá þeim. Njarðvíkurvörnin var þó ekki nægilega beitt og þeir Martin Hermannsson og Oddur Kristjánsson keyrðu upp hraðann í leiknum fyrir KR og oftar en ekki fundu þeir Kristófer Acox í teignum sem stóð ávallt skil á sínu og m.a. splæsti kappinn í tvær góðar troðslur í leikhlutanum.
KR fór með forystuna inn í leikhlé, 48-43 en Njarðvíkingurinn Maciej Baginski var stigahæstur allra í fyrri hálfleik með 24 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar en hjá KR var Kristófer Acox með 14 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar.
Hvort flottur sprettur hjá KR undir lok fyrri hálfleiks hafi stigið þeim til höfuðs skal ósagt látið en þeir mættu vindlausir inn í þriðja leikhluta á meðan Njarðvíkingar munduðu byssurnar og hreinlega kafsigldu KR. Maciej kom Njarðvík í 52-50 með þrist, Sigurður Dagur Sturluson bætti við öðrum og staðan 65-56 og annar baneitraður þristur frá Elvari Friðrikssyni jók muninn í 68-56 og Njarðvík skoraði 25 stig gegn átta frá KR á fyrstu fimm mínútum þriðja leikhluta! Magnaður kafli sem lagði grunninn að Njarðvíkursigri í dag.
KR tók leikhlé þar sem Finnur Freyr Stefánsson þjálfari röndóttra lét sína menn fá það óþvegið! KR lifnaði aðeins við reiðilesturinn en skaðinn var skeður, Njarðvík vann þriðja leikhluta 37-18 og í dag voru þeir með umtalsvert betri þriggja stiga nýtingu en teignýtingu. Staðan 80-66 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Hægt og bítandi í fjórða leikhluta tókst KR að saxa á forskot grænna, vörn vesturbæinga batnaði til muna og eftir 5-0 rispu frá Martin Hermannssyni náði KR að minnka muninn í 90-86. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka fóru KR-ingar illa að ráði sínu, grýttu boltanum frá sér og Elvar Friðriksson refsaði röndóttum með körfu og staðan 96-86. Hér var einfaldlega of mikið farið út af tanknum hjá KR og Njarðvíkingar lönduðu sigrinum örugglega, 102-92, í góðum leik.
Njarðvík:
Maciej Baginski 42 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar
Elvar Friðriksson 22 stig, 6 fráköst og 14 stoðsendingar
Oddur Birnir Pétursson 17 stig og 13 fráköst
KR:
Martin Hermannsson 30 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar
Kristófer Acox 24 stig, 20 fráköst og 6 stoðsendingar
Oddur Kristjánsson 23 stig og 5 stoðsendingar
Karfan.is óskar Njarðvíkingum innilega til hamingju með bikartitilinn!
Umfjöllun og mynd/ [email protected]



