spot_img
HomeFréttirNjarðvík betri en Fjölnir í Ljónagryfjunni

Njarðvík betri en Fjölnir í Ljónagryfjunni

Njarðvík sigraði Fjölnir í 13. umferð Domino´s deildar karla í körfubolta fyrr í kvöld á heimavelli sínum, í Ljónagryfjunni, með 91 stigi gegn 82. Njarðvík voru fyrir leikinn í 6. sæti deildarinnar með 12 stig á meðan að Fjölnir sátu í því 12. með 4. 
 

 

Mikilvægur leikur fyrir bæði lið að mörgu leyti. Njarðvík að reyna að koma sér sem best fyrir í einkar jafnri og spennandi deild h.v. úrslitakeppni og Fjölnir, eftir að hafa komið úr fyrstu deild fyrir þetta tímabil, að berjast fyrir því að verða ekki strax sendir aftur þangað á næsta ári.

 

Fyrri hálfleikurinn féll naumlega með Fjölni, staðan í hálfleik var 47-52 fyrir gestunum úr Gravarvogi. Mestu munaði Fjölni um frammistöður þeirra Arnþórs Freys Guðmundssonar og Jonathan Mitchell sem að virtust draga lið sitt áfram gegn, á tímum, vandræðalega illa samtilltu Njarðvíkurliði.

 

Eftir hálfleikshléið mætti hinsvegar annað og betra Njarðvíkurlið til leiks og voru þeir búnir að jafna leikinn þegar aðeins rétt mínúta hafði lifað af leikklukkunni í seinni hálfleik. Fyrsta karfan með laglegri troðslu háloftafuglsins Stefan Bonneau og síðan í framhaldi setti Hjörtur Hrafn niður langan þrist til þess að setja stöðuna á par í 52-52.

 

Það var í raun ekki fyrr en um helmingur hlutans lifði eftir sem að Njarðvík sýndi sitt rétta andlit í smástund og tók almennilega (5-9 stig) fram úr Fjölni. Þeirri, naumu forystu, héldu þeir svo allt til loka leiks, en hann endaði með 91-82 sigri heimamanna.

 

Maður leiksins var leikmaður Njarðvíkur, Stefan Bonneau, sem skilaði hæstu framlagi (29) allra leikmanna á vellinum, en hann skoraði 28 stig, tók 4 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á þeim 37 mínútum sem hann spilaði í þessum öðrum leik sínum í Ljónagryfjunni.

 

Punktar:

  • Bæði lið notuðu 8 leikmenn í leiknum.
  • Nýjir útlendingar, Stefan Bonneau & Jonathan Mitchell, leiddu hvort lið fyrir sig í stigum/framlagi.
  • Mirko Stefán Virijevic tók tæplega helming allra frákasta Njarðvíkur.
  • Fjölnir voru (+/-) 19 stigum undir á meðan að nýr leikmaður þeirra Emil Þór Jóhannsson var á gólfinu.

 

Myndasafn 

Tölfræði 

 

 

Umfjöllun,myndir,viðtöl/ Davíð Eldur

 

 

Hjalti Vilhjálmsson – Fjölnir:

 

Ágúst Orrason – Njarðvík:

 
Fréttir
- Auglýsing -