ÍR hefur samið við tíu leikmenn fyrir komandi átök í fyrstu deild kvenna. Tilkynnir félagið þetta á Facebook.
Veronika Amý Ásgeirsdóttir, Þórdís Rún Hjörleifsdóttir, Victoria Lind Kolbrúnardóttir, Aþena Þórdís Ásgeirsdóttir, Katrín Huld Káradóttir, Heiða Sól Jónsdóttir, Hafdís Hildur Gunnarsdóttir, Gréta Hjaltadóttir, Embla Ósk Sigurðardóttir og Benedikta Fjóludóttir munu allar vera með ÍR á komandi tímabili í fyrstu deild kvenna.









