HomeBónus deildinBónus deild karlaNíu djarfa fullyrðingar eftir fyrstu tvo leikina: Er Mirza Bulic betri en...

Níu djarfa fullyrðingar eftir fyrstu tvo leikina: Er Mirza Bulic betri en Kristófer Acox?

Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.

Með Máté í þessum síðasta þætti eru stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson og sá raunverulegi Tómas Steindórsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir tímabilið í Bónus deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst á morgun.

Hérna er Run & Gun á Spotify

Run & Gun rýndi nýlega í fyrstu tvo leiki átta liða úrslita Bónus deildar karla. Meðal þess sem bar á góma voru djarfar fullyrðingar um framhaldið, þar á meðal að Grindavík muni aldrei verða Íslandsmeistarar og að ÍR sé þegar úr leik.

Sérstök athygli var vakin á leikmönnum eins og Dominykas Milka, sem er talinn besti stóri maður deildarinnar, og Mirza Bulic, sem sagður er betri en Kristófer Acox. Þá voru leikskipulag Stjörnunnar og leikmannamál Njarðvíkur einnig til ítarlegrar umræðu.

Umræðu Run & Gun er hægt að sjá hér fyrir neðan og þá er hægt að hlusta á umræðuna í síðustu upptöku hlaðvarpsins hér.

Fréttir
- Auglýsing -