spot_img
HomeFréttirNiðurstaða í pungsparksmálinu

Niðurstaða í pungsparksmálinu

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar er varðaði brottrekstur David Guardia Ramos leikmanns Hattar í þriðja leik liðsins gegn Val í átta liða úrslitum Subway deildar karla. Niðurstaðan er þriggja leikja bann, en David verður því ekki með Hetti aftur fyrr en mögulega í undanúrslitum keppninnar ef að þeir komast þangað.

Með vísan til ákvæðis d. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, David Guardia Ramos, leikmaður Hattar, sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn Hetti, sem fram fór þann 18 apríl 2024.

Fréttir
- Auglýsing -