Eins og landsmenn vita þá fer stórleikur í Domino's deildar karla fram í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Keflavík í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar í samstarfi við Nettó hafa ákveðið að bjóða öllum sem vilja frítt á leikinn og því má búast við svakalegri stemmingu í Njarðvík í kvöld. Nágrannaslagur á suðurnesjunum af bestu gerð og full stúka er uppskrift að stórkostlegu kvöldi sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og hvetjum við stuðningsmenn til þess að mæta tímanlega.
Góða skemmtun í Ljónagryfjunni í kvöld.




