HomeFréttirNCAA í fullu fjöri

NCAA í fullu fjöri

Í gær var líf og fjör þegar 64-liða úrslitin hófust og voru fjölmargir leikir á dagskránni í bandaríska háskólaboltanum. Flest fór eftir bókinni en samt sem áður voru óvænt úrslit víða og að minnsta kosti fjórar viðureignir þar sem lægra metna liðið hafði sigur.
Sem dæmi má nefna öskubuskulið síðasta árs, ef frá er talið lið Butler, VCU (12 sæti styrkleikaflokks) sigraði sinn fyrsta leik gegn Wichita State (5) og munu mæta New Mexico State (13) sem unnu Indiana (4).
 
Styrkleikaflokkun liða í lokamóti NCAA er flókin og eru margir þættir sem ráða, hversu hátt lið eru flokkuð. Það kemur því oft fyrir að lið fá hærri eða lægri flokkun en þau ættu að fá sem leiðir oft til óvæntra úrslita.
 
Iowa State kom í veg fyrir að liðin tvö úr úrslitaleiknum í fyrra myndu mætast í næstu umferð. Kentucky vann sinn leik og hefði leikið við Connecticut ef ekki hefði verið fyrir góðan sigur Iowa St.
 
Áhugaverðir leikmenn: 
Að venju eru margir leikmenn orðaðir við NBA-deildina. Frá því í fyrra má nefna Jimmer Fredette, Kemba Walker og Kyrie Irving sem voru valdir í nýliðavalinu og til að nefna örfáa sem gætu fylgt í fótspor þeirra í ár má nefna þá þrjá félaga hjá North Carolina, sem margir spá sæti í úrslitaleiknum, þeir John Henson, Tyler Zeller, Harrison Barnes, Anthony Davis og Terrence Jones í Kentucky eru taldir líklegir til að fara í nýliðavalinu í ár sem og Jared Sullinger hjá Ohio State.
 
Meðal annarra leikmanna sem gaman er að minnast á er til dæmis sonur Doc Rivers á fyrsta ári hjá Duke og svo er Tim Hardaway Jr. leikmaður Michigan.
 
Hægt er að fylgjast með leikjunum í allan dag fram á nótt á ESPN America á Fjölvarpi Stöðvar 2 fyrir þá sem hafa áhuga á. Allar nánari upplýsingar um leiki má sjá á http://www.ncaa.com/sports/basketball-men/d1
  
Fréttir
- Auglýsing -