spot_img
HomeFréttirNBA veisla á Stöð 2 Sport í vetur

NBA veisla á Stöð 2 Sport í vetur

13:57

{mosimage}
(Shaw mætir sínum gömlu félögum á Stöð 2 Sport)

Stöð 2 Sport mun gera NBA körfuboltanum betri skil en nokkru sinni áður í vetur. Boðið verður upp á fleiri beinar útsendingar bæði frá deildakeppni og úrslitakeppni og þá verður þátturinn NBA Action tekinn til sýninga á ný. Kemur þetta fram á www.visir.is

Stöð 2 Sport verður með fyrstu beinu útsendinguna frá NBA föstudaginn 28. nóvember þegar Phoenix tekur á móti Miami klukkan eitt eftir miðnætti.

Rúsínan í pylsuendanum í desember verður án efa risaleikur LA Lakers og Boston Celtics klukkan 22 á jóladagskvöld, en þar mætast liðin sem léku til úrslita í deildinni á síðustu leiktíð.

Í vetur verða fleiri beinar útsendingar frá deildakeppninni en verið hefur áður og einnig verður bætt við beinum útsendingum frá úrslitakeppninni.

Stjörnuleikurinn í febrúar verður að sjálfssögðu á sínum stað og þá verða allir leikir úr lokaúrslitunum næsta sumar sýndir beint eins og verið hefur.

Þá ættu margir að gleðjast yfir því að stöðin mun á ný taka upp sýningar á þættinum vinsæla NBA Action sem var á dagskrá hér á árum áður.

Þar er um að ræða vikulegan þátt þar sem farið er yfir helstu tilþrif vikunnar í deildinni. Hann verður sýndur á fimmtudögum og endursýndur á föstudögum og sunnudögum.

Beinar útsendingar til áramóta eru:

28. nóvember Miami – Phoenix kl. 01:00 (föstudagur)
7. desember New York – Detroit kl. 17:00 (sunnudagur)
19. desember Miami – LA Lakers kl. 01:00 (föstudagur)
25. desember LA Lakers – Boston kl. 22:00 (fimmtudagur-jóladagur)
28. desember New York – Denver kl. 18:00 (sunnudagur)

www.visir.is

Fréttir
- Auglýsing -