09:54
{mosimage}
(Kevin Martin var sjóðandi heitur gegn Dallas í nótt)
Alls voru sjö leikir leiknir síðastliðna nótt í NBA deildinni þar sem nokkrir leikir unnust mjög tæpt.
John Salamons var hetja Sacramentomanna sem sigruðu Dallas Mavs. 120-122 en hann skoraði sigurkörfuna þegar 2,4 sek. voru eftir. Það var hins vegar Kevin Martin sem var stigahæstur Kings með 39 stig á þeim 28 mín. sem hann spilaði.
Hjá Dallas voru það Terry og Harris með 25 stig hvor og Nowitzki var með 21 stig.
Það var einnig hörku leikur þegar L.A. Lakers mætti Seattle Supersonics þar sem þurfti framlengingu til að skera úr um sigurvegara eftir að staðan hafi verið 115-115 eftir venjulegan leiktíma. Lakers hafði tveggja stiga sigur á Supersonics, 123-121, en Kobe Bryant skoraði lengst utan af velli þegar 4,3 sek. voru til leiksloka.
Kobe var allt í öllu hjá sínum mönnum og skoraði 48 stig en þetta er í 87. skipti sem að hann fer yfir 40 stigin í leik.
Hjá Supersonics var það Nick Collison sem lék manna best en hann endaði leikinn með 24 stig og 18 fráköst.
Sjónvarpsleikur næturinnar var stórleikurinn Milwaukee Bucks gegn Utha Jazz. Jazz sigraði örugglega en vörn þeirra í 4. leikhluta var hreint mögnuð og til að mynda skoruðu Bucks aðeins 2 körfur utan af velli í leikhlutanum..
Deron Williams var stigahæstur Jazz með 33 stig og 10 stoðsendingar en hann skoraði 14 stig í 4. leikhluta. Hjá Bucks var það A. Bogut sem var atkvæðamestur með 23 stig og 10 fráköst.
Manu Ginobili var hetja Spursmanna þegar hann setti niður 14 af 20 stigum sínum í 4. leikhluta og tryggði San Antonio Spurs góðan sigur á Philadelphia 76ers 89-82.
Ginobili var stigahæstur sinna manna en Tim Duncan var næstur honum með 18 stig og 16 fráköst.
Willi Green var stigahæstur 76ers en hann skoraði 21 stig. Félagi hans Dalembert var hins vegar með 20 fráköst
Portland hafði ekki mikið fyrir sigri sínum á New Jersey Nets en Portland sigraði með yfirburðum 99-73.
Hjá heimamönnum í Nets var Malik Allen stigahæstur með 17 stig en hjá Portland var það LaMarcus Aldrige sem skoraði mest en hann smellti 20 stigum niður.
Washington Wizards sigruðu Boston Celtics í annað sinn á þrem dögum, 88-83, og er þetta í fyrsta skipti á tímabilinu sem að Boston tapar tveim leikjum í röð.
Caron Butler var stigahæstur Washington með 21 stig og félagi hans Antawn Jamison setti niður 20 stig og reif niður 10 fráköst.
Eini ljósi punktur Boston var Kevin Garnett en hann sallaði niður 23 stigum í annars jafn döpru liði Boston.
Charlott Bobcats rétt mörðu sigur á Denver Nuggets 119-116. Það var Matt Carroll sem að innsiglaði sigur Bobcats þegar hann setti niður tvö vítaskot þegar um 4 sek. voru eftir.
Gerald Wallace var hins vegar maðurinn hjá Bobcats en hann setti niður 40 stig og var aðeins tveim stigum frá því að jafna sitt mesta skor í leik.
Carmelo Anthony skorði 35 stig og Marcus Camby setti niður 20 stig og tók 23 fráköst
Mynd: nba.com




