17:36
{mosimage}
(Getur TMac komið Rockets í gegnum fyrstu umferð úrslitakeppninnar?)
Tveir leikir fara fram í úrslitakeppninni í NBA deildinni í nótt og verður annar leikur Houston Rockets og Utah Jazz sýndur í beinni útsendingu á NBA TV kl. 01:30 eftir miðnætti í nótt. Staðan í einvíginu er 1-0 Houston í vil eftir 84-75 sigur Houston í fyrsta leik þar sem Yao Ming og Tracy McGrady kláruðu leikinn með frábærri frammistöðu.
Hinn leikur kvöldsins er viðureign Orlando Magic og Detroit Pistons en liðin mætast á heimavelli Pistons í Palace of Auburn Hills. Fyrsta leik liðanna lauk með 100-92 sigri Pistons sem leiða því einvígið 1-0.
{mosimage}



