Þá er NBA deildin farin af stað og þótt lítið sé búið af tímabilinu þá er ýmislegt sem komið hefur á óvart á fyrstu vikunum.
Það verður að segjast að New York Knicks voru með sorglegri liðum síðasta tímabils. Stuðningsmenn virtust endanlega vera gefa upp lífsviljann þegar Phil Jackson kaus að velja Kristaps Porzingis í nýliðavalinu nú í sumar. Það hljóta einhverjir stuðningsmanna að hafa skipt um skoðun því nú er staðan sú að Porzingis treyjur eru uppseldar í NBA búðinni. Liðið hefur unnið 4 leiki í röð og nú síðast 2 útileiki í röð gegn sterkum liðum Oklahoma og Houston.
Oklahoma City Thunder, lið Kevin Durant sem var MVP deildarinnar árið 2014, er þegar mánuður er búinn af deildinni jafnt liði Charlotte Hornets. Þ.e.a.s. bæði lið hafa unnið 7 leiki af 13 og spurning hvort Michael nokkrum Jordan sé skemmt yfir þessu.
Áðurnefnt lið Houston Rockets hefur verið í fréttunum síðustu daga en þar á bæ fékk yfirþjálfarinn, Kevin McHale, að fjúka eftir slaka frammistöðu sinna manna. Liðið er með næst verstu varnar frammistöðu deildarinnar í vetur en voru með sterkari varnarliðum deildarinnar í fyrra. McHale var sagður eiga heiðurinn að því og ekki er nema ár síðan að hann var tilnefndur sem besti þjálfari deildarinnar. Greinilegt að stöður manna geta breyst ansi hratt. Það má svo deila um hvort hafi þótt fréttnæmara, brottrekstur McHale eða það að James Harden sé mögulega nýjasti kærasti Khloé Kardashian.
En liðið sem ber höfuð og herðar yfir önnur er að sjálfsögðu Golden State Warriors, ríkjandi deildarmeistarar. Meistararnir eru þegar búnir að skrá sig í sögubækurnar en þeir eru ósigraðir í fyrstu 15 leikjum sínum. Þetta hefur einungis tveimur öðrum liðum tekist en það voru Washington Capitols 1948-49 og Houston Rockets 1993-94. GSW eiga næst leik heima gegn Los Angeles Lakers og samkvæmt tölfræðinni ættu Kobe gamli og lærisveinar ekki að vera þeim mikil fyrirstaða. Metið gæti því fallið og GSW orðið fyrsta liðið frá upphafi NBA til að sigra fyrstu 16 leiki sína og þar með ritað nafn sitt í sögubækurnar.
Þetta hefur liðið gert án yfirþjálfarans, Steve Kerr, sem er er ennþá frá störfum eftir aðgerð á baki í sumar. Kerr varð því miður fyrir því að í upprunalega aðgerðinni fór ekki allt eins og átti og hann þurfti því að leggjast aftur undir hnífinn til að stöðva leka á mænuvökva. Hann er að sögn enn að jafna sig en vill ekki setja neina tímasetningu á það hvenær hann getur snúið aftur til starfa.
Ríkjandi MVP deildarinnar, Stephen Curry, tókst á dögunum að skjóta sér upp fyrir föður sinn, Dell Curry, á listanum yfir flestar skoraðar þriggja stiga körfur á ferlinum. Sá yngri hefur því náð betri árangri við upphaf 7. tímabils síns í deildinni heldur en þeim eldri tókst á sínum 18. tímabilum.
Það er spurning hvort eitthvað lið eigi séns í meistarana eins og staðan er í dag, og þá hvert þeirra það ætti að vera. Í tölfræðibanka NBA heimasíðunnar eru GSW leikmenn í fjórum efstu sætunum á lista yfir "offensive rating" og vert að geta að Stephen Curry er þar í öðru sæti, á eftir Harrison Barnes.
Meistararnir bera það áberandi að sjálfstraustið er í botni og þeir koma kannski bara óvart með því að standa sig enn betur en fólk leyfði sér að vona.




