spot_img
HomeFréttirNBA: Prince á leið frá Detroit?

NBA: Prince á leið frá Detroit?

12:00

{mosimage}

Tayshaun Prince, framherji Detroit Pistons, er kominn á sölulista hjá félagi sínu. Joe Dumars, framkvæmdastjóri liðsins, hét því þegar liðið fell út fyrir Boston í úrslitakeppninni að hrista aðeins upp í hópnum. Nú þegar er nýr þjálfari kominn í brúna og nú er talið að Prince gæti verið á leiðinni í burtu.

Prince er ekki eini litli framherjinn sem er á sölulista en þeir Richard Jefferson(New Jersey), Josh Howard(Dallas) og Gerald Wallace(Charlotte) eru einnig taldir líklegir að fá nýjan vinnuveitanda í sumar.

[email protected]

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -