15:00
{mosimage}
Phoenix heimsækir Golden State í kvöld og nýjasti liðsmaður Phoenix hefur ekki enn leikið með liðinu. Hann er byrjaður að æfa en Shaq vill ekki spila fyrr en hann er kominn á fullt.
,,Ég vil vera aðeins meira í takt við liðið þegar ég fer á völlin. Því að ef þú horfir á þetta lið án mín eru þeir eins og vel smuðr vél,” sagði Shaq eftir æfngu í gær. ,,Ég vil ekki vera böggið í vélinni.”
Skipti Shaq til Phoenix hefur að vonum vakið mikla athygli og á NBA-blogginu á Vísi er myndbrot þar sem Bill Walton tjáir sig aðeins um vistaskipti Shaq og viðbrögð Shaqs við þeim.
Mynd: AP



