spot_img
HomeFréttirNBA: Gerald Green til Dallas

NBA: Gerald Green til Dallas

18:37

{mosimage}
(Háloftafuglinn Green spilar með Kidd og félögum á næsta ári)

Dallas Mavericks hafa gert eins árs samning við Gerald Green en hann var í fyrra á mála hjá Minnesota og Houston. Bakvörðurinn hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann kom í NBA-deildina fyrir þremur árum.

Hann er einna frægastur fyrir framgögnu sína í tveimur troðslukeppnum en Boston valdi hann nr. 18. í nýliðavalinu á sínum tíma og þótti hann einn efnilegasti leikmaður NBA.

Green vann troðslukeppnina árið 2007 og lenti í öðru sæti í ár.

Hann hefur aldrei náð að standa undir væntingum og Boston lét hann fara í Kevin Garnett skiptunum. Þaðan fór hann til Houston og nú er hann kominn til Dallas.

Green gerði eins árs samning við Dallas.

[email protected]

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -