spot_img
HomeFréttirNBA: Atlanta hefur viku

NBA: Atlanta hefur viku

12:00

{mosimage}
(Troðarinn Josh Smith hyggur á flutning)

Framherji Atlanta, Josh Smith, hefur skrifað undir samning við Memphis Grizzlies. Gengur hann til liðsins ef Atlanta nýtir sér ekki rétt sinn gagnvart leikmanninum.


Josh Smith er svokallaður (restricted free agent) sem þýðir að leikmaðurinn má semja við annað lið en Atlanta hefur samt þann rétt til að jafna það tilboð sem hann samþykkir og ef þeir gera það verður Smith að leika með liði Atlanta.

Samningurinn er talin vera 58 milljón dollara virði og yrði það ágætis launahækkunn fyrir kappann.

 

Atlanta hefur gefið það út að þeir muni jafna öll þau tilboð sem hann skrifar undir og því er líklegt að leikmaðurinn verði áfram í Atlanta.

Nú hafa þeir viku til að ákveða sig hvort þeir haldi Smith eður ei. Ef þeir gera honum ekki tilboð að viku liðinni spilar hann með Memphis.

[email protected]

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -