10:13
{mosimage}
(Luke Walton)
Framherji L.A. Lakers, Luke Walton, gekkst undir aðgerð síðastliðinn föstudag til þess að fjarlægja beinflísar í hægra ökkla hans. Walton sem hefur leiki með Lakers undanfarin ár verður frá næstu sex vikurnar.
Hann verður væntanlega orðinn heill heilsu á ný þegar undirbúningstímabilið hefst í haust hjá L.A. Lakers.
Mynd: AP