Einn leikur fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings máttu þola naumt 87-84 tap gegn Södertalje Kings á útivelli.
Logi gerði 16 stig í leiknum og tók 3 fráköst á tæpum 34 mínútum fyrir Solna. William Walker var stigahæstur hjá Solna með 28 stig.
Þrír leikir eru í sænsku deildinni í kvöld, Brynjar Þór Björnsson og liðsfélagar í Jamtland mæta sterku liði LF Basket á útivelli en Sundsvall leikur næsta deildarleik 17. febrúar sem og 08 Stockholm HR.
Mynd/ Solna Vikings – Logi Gunnarsson gerði 16 stig fyrir Solna í gærkvöldi.



