Íslenska U18 ára landsliðið tapaði í kvöld gegn Hollendingum í Bosníu en liðin eru að leika um 9.-16. sæti á mótinu í B-deild. Lokatölur gegn Hollendingum í kvöld voru 63-70 Hollandi í vil.
Matthías Orri Sigurðarson var stigahæstur í íslenska liðinu með 27 stig og 2 fráköst og þá var fyrirliðinn Emil Karel Einarsson með 11 stig og 6 fráköst. Ísland mætir svo Portúgal á morgun kl. 18:00.
Mynd/ Matthías Orri Sigurðarson gerði 27 stig í íslenska liðinu í dag.