spot_img
HomeFréttirNæstum öllum leikjum kvöldsins frestð - KKÍ bíður frekari útskýringa yfirvalda

Næstum öllum leikjum kvöldsins frestð – KKÍ bíður frekari útskýringa yfirvalda

Körfuknattleikssambandið hefur frestað leikjum kvöldsins í Dominos deild kvenna og 7. flokk drengja vegna reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tók gildi á miðnætti.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort frestað verði leik Keflavíkur gegn Selfoss sem fara á fram í kvöld, en sá leikur er fyrir utan höfuðborgarsvæðið, í Keflavík og á milli tveggja félaga sem bæði eru staðsett fyrir utan höfuðborgarsvæðið.

Samkvæmt yfirlýsingu frá sambandinu, er beðið frekari leiðbeininga yfirvalda.

Yfirlýsing KKÍ:

Á miðnætti tók í gildi reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 966/2020 um breytingu á reglugerð 957/2020 um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Reglugerð þessi setti auknar takmarkanir á starfsemi í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ, en þá helst það sem snýr að KKÍ er að keppni inniíþrótta er bönnuð á þessu svæði, auk þess sem æfingar innanhúss þeirra sem fæddir eru 2004 og fyrr eru bannaðar.

Stjórn og mótanefnd KKÍ fundaði í morgun um þá stöðu sem er uppi, en enn er beðið frekari skýringa frá yfirvöldum á ákveðnum þáttum í reglugerðinni, og á meðan svo er verður vandséð hvernig hægt sé að taka ákvörðun um framtíð mótahalds til 19. október nk. Fyrir liggur að ekki félög á höfuðborgarsvæðinu megi ekki keppa í dag og því verður eftirfarandi leikjum frestað til samræmis við 2. grein reglugerðar KKÍ um ráðstafanir vegna heimsfaraldurs COVID-19.

Domino‘s deild kvenna

Breiðablik – Keflavík

Fjölnir – Haukar

Snæfell – KR

Valur – Skallagrímur

7. flokkur drengja

Njarðvík – Stjarnan

KR – Fjölnir

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um leik Keflavíkur og Selfoss í bikarkeppni unglingaflokks karla sem er á dagskrá í Keflavík í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -