spot_img
HomeFréttirNær Valur öðru sæti deildarinnar?

Nær Valur öðru sæti deildarinnar?

 

Fjórir leikir eru í fyrstu deild karla í kvöld. Höttur hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn sem fer á loft á Egilsstöðum í kvöld eftir leikþeirra gegn Breiðablik. Með þessu fyrsta sæti fá þeir beinan farseðil aftur upp í deild þeirra bestu fyrir næsta tímabil. Liðin í 2.-5. sæti munu svo leika úrslitakeppni um hitt sætið. Nokkuð ljóst er að það verða Hamar, Breiðablik, Valur og Fjölnir sem að verða í þeirri úrslitakeppni. Hvernig þau raðast upp og hvernig heimavallarmál er þó ekki alveg á hreinu. 

 

Ef að við gerum ráð fyrir Valur klári þessa tvo leiki (unnu Vestra síðast með 53 stigum þann 21. janúar síðastliðinn) þá þarf Fjölnir að tapa sínum leik gegn ÍA til þess að Valur eigi möguleika á 2. sætinu. Von Valsara veik, en þó til staðar. Annars myndi úrslitakeppni 1. deildarinnar líta svona út:

Fjölnir – Hamar

Valur – Breiðablik

Úrslitakeppnin hefst svo 14.mars og stendur til 14. apríl.

 

Staðan í deildinni

 

Leikir dagsins

 

1. deild karla:

Höttur Breiðablik – kl. 18:30

Hamar FSu – kl. 19:15

ÍA Fjölnir – kl. 19:15

Vestri Valur – kl. 19:15

 

Fréttir
- Auglýsing -