HomeBónus deildinBónus deild kvennaNær Keflavík að jafna metin í kvöld?

Nær Keflavík að jafna metin í kvöld?

Keflavík og Haukar mætast í öðrum leik undanúrslita Bónus deildar kvenna í kvöld í Blue-höllinni. Haukar leiða einvígið eftir að hafa unnið fyrsta leikinn með sannfærandi hætti á sínum heimavelli. Það er því mikil pressa á bikarmeisturum Keflavíkur að jafna metin fyrir framan sína stuðningsmenn og hleypa nýju lífi í rimmunna.

Einvígið er spilað þannig að vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í sjálfum úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Haukakonur geta tekið afar þýðingarmikið skref í átt að úrslitum með öðrum sigri í röð en Keflvíkingar ætla sér vafalaust að sýna klærnar og nýta heimavallarréttinn til að knýja fram sigur. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Leikur kvöldsins

Bónus deild kvenna – Undanúrslit

Keflavík Haukar – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -