U18-landslið kvenna í körfuknattleik leikur sinn fjórða og síðasta leik í A-riðli B-deildar Evrópumótsins í Rúmeníu í dag, miðvikudaginn 5. ágúst. Íslensku stelpurnar mæta Aserbaídsjan klukkan 13:00 að íslenskum tíma.
Íslenska liðið er á miklu flugi og tryggði sér glæsilegan sigur gegn Hollandi í gær, sinn annan sigur í röð á mótinu. Stelpurnar ætla sér að ljúka riðlakeppninni af krafti með þriðja sigrinum áður en útsláttar- og umspilskeppnin hefst síðar í vikunni.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leiknum í spilaranum hér fyrir neðan:




