spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaNær Hamar að tryggja sér sæti í Subway deildinni í kvöld?

Nær Hamar að tryggja sér sæti í Subway deildinni í kvöld?

Skallagrímur tekur á móti Hamri í fjórða leik úrslitaeinvígis fyrstu deildar karla í kvöld kl. 18:00 í Borgarnesi.

Fyrstu tveimur leikjum einvígis liðanna skiptu liðin á milli sín, þar sem Hamar vann fyrsta leik í Hveragerði, en Skallagrímur jafnaði metin í leik tvö í Borgarnesi. Í þeim síðasta hafði Hamar svo aftur betur í Hveragerði og geta þeir því tryggt sér sæti í Subway deildinni með sigri í kvöld.

Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í Subway deildinni.

Leikur dagsins

Úrslitaeinvígi – Fyrsta deild karla

Skallagrímur Hamar – kl. 18:00

(Hamar leiðir einvígið 2-1)

Fréttir
- Auglýsing -