HomeFréttirNá Stjarnan og Njarðvík að jafna í kvöld?

Ná Stjarnan og Njarðvík að jafna í kvöld?

Veislan heldur áfram í kvöld þegar leikir tvö í átta liða úrslitum Dominos deildar karla fara fram. Tveir leikir eru í kvöld og seinni tveir annað kvöld. 

 

Í Njarðvík mætir KR í heimsókn eftir að hafa unnið ansi sannfærandi sigur á sínum heimavelli í fyrsta leiknum. Liðin hafa oft mæst í úrslitakeppninni og er ljóst að það er erfitt að mæta Njarðvík í Ljónagryfjunni. Í síðustu tvö skipti sem liðin mættust í úrslitakeppninni hafa Njarðvíkingar alltaf unnið sinn fyrsta heimaleik og spurning hvort sú hefð haldi í kvöld? 

 

Stjarnan fær ÍR í heimsókn í Ásgarð en breiðhyltingar náðu forystu í einvíginu með sigri í Breiðholtinu. Sömu lið mættust í átta liða úrslitum í fyrra og þá unnu Stjörnumenn báða heimaleikina. Stjörnumenn mæta væntanlega dýrvitlausir til leiks en auk þess að tapa í fyrsta leiknum þá beið þeirra ekki fögur sjón inní búningsklefa eftir leik. Því óprúttinn aðili hafði brotist inní klefa Stjörnunnar í Hertz-hellinum og látið öllum illum látum. 

 

 

Fjallað verður um leiki dagsins í kvöld á Karfan.is. 

 

 

 

Leikir dagsins: 

 

Dominos deild karla – Átta liða úrslit:

Stjarnan – ÍR – kl. 19:15 (Staðan í einvíginu ÍR 1-0 Stjarnan)

Njarðvík – KR – kl. 19:15 í beinni á Stöð 2 Sport (Staðan í einvíginu KR 1-0 Njarðvík)
 

Úrslitakeppni 1. deildar karla:

Snæfell – Hamar – kl. 19:15 (Staðan í einvíginu Hamar 1-0 Snæfell)
 

Fréttir
- Auglýsing -