HomeFréttirMyndi Gary Oldman samþykkja þetta?

Myndi Gary Oldman samþykkja þetta?

Í gær birtum við klippu með Gary Oldman þar sem hann vandar íþróttamönnum ekki kveðjurnar en margir þeirra hafa spreytt sig sem leikarar með misgóðum árangri. Fyrrum leikmaðurinn, þjálfarinn og nú formaðurinn Friðrik Ragnarsson er nýjasta viðfangsefni Landsbankans og hefur kappinn verið tíður gestur á skjám landsmanna í auglýsingaherferð bankans.
Ætli Gary Oldman yrði æfur yfir þessu eða sleppur þetta undir radarinn? Hvort Oldman myndi fetta findur út í þessi fyrirsætustörf Friðriks skal ósagt látið en Friðrik er þó ekki fyrstur úr boltanum til að vera viðfangsefni Landsbankans því hér fyrir skemmstu var Berglind Gunnarsdóttir, Snæfell, einnig í herferð bankans.
  
Fréttir
- Auglýsing -