spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMyndband: Þúsundir hylltu Tryggva og félaga við heimkomu til Bilbao með Evrópubikarinn

Myndband: Þúsundir hylltu Tryggva og félaga við heimkomu til Bilbao með Evrópubikarinn

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao unnu FIBA Europe Cup fyrir helgina, en úrslitaleikirnir voru heima og heiman gegn gríska liðinu PAOK þar sem Bilbao vann með samanlögðum fimm stiga mun.

Líkt og Tryggvi minntist á í samtali við Körfuna eftir titilinn hófust fagnaðarlæti liðsins strax á leið heim frá Grikklandi, þar sem seinni leikurinn var spilaður, en í dag var liðinu formlega fagnað í heimaborginni Bilbao.

Líkt og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan mættu borgarbúar í þúsundum til að hylla liðið, en þetta er fyrsti Evróputitill sem liðið vinnur. Áður en hátíðarhöldin fóru af stað við torgið hjá héraðsráði Bizkaia fór liðið í gegnum borgina í opinni rútu svo sem flestir gætu tekið þátt í fögnuðinum með þeim.

Fréttir
- Auglýsing -