spot_img
HomeFréttirMyndband: Martin reyndist hetjan gegn Sviss

Myndband: Martin reyndist hetjan gegn Sviss

Íslenska landsliðið lék sinn annan leik í forkeppni Eurobasket 2021 í dag þegar liðið mætti Sviss. Martin Hermannsson reyndist hetja Íslands þegar hann setti sigurkörfu Íslands á lokaandartökum leiksins og 83-82 sigur Íslands staðreynd.

Martin setti einnig gríðarlega mikilvæga körfu á lokamínútunni þar sem hann skorar listilega yfir Clint Capela leikmann Houston Rockets.

Leikmaðurinn sagði í samtali við Körfuna eftir leik að honum hefði liðið vel með skotið og það væri mikill léttir að ná í sigurinn í dag. Viðtalið við Martin má finna í heild sinni hér.

Tvær mikilvægustu körfur Martins í dag má finna á myndbandi hér að neðan:

Fréttir
- Auglýsing -