spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaMyndband: Elías Bjarki með sigurkörfuna á Flúðum

Myndband: Elías Bjarki með sigurkörfuna á Flúðum

Frestaður leikur í 1. deild karla fór fram í kvöld þegar Hrunamenn tóku á móti Hamri á Flúðum. Heimamenn náðu mjög góðri forystu snemma í leiknum en gestirnir komu sér aftur inní leikinn í þriðja leikhluta. Upphófust æsilegar lokamínútur.

Þegar rúmar átta sekúndur eru eftir að leiknum setur Haukur Hreinsson tvö víti og kemur Hrunamönnum einu stigi yfir. Hamar tekur leikhlé og fær boltann á sínum vallarhelming með lítið eftir. Síðasta kerfið endar þannig að Elías Bjarki Pálsson fær galopið þriggja stiga skot og setur niður skotið sitt. Hálf sekúnda var eftir á klukkunni sem Hrunamenn gátu ekki gert sér mat úr.

Niðurstaðan tveggja stiga sigur Hamars sem halda áfram að salla inn sigrunum í deildinni. Myndband af sigurkörunni má finna hér að neðan:

Fréttir
- Auglýsing -