Íslensku U16 landsliðin í körfuknattleik eru nú rúmlega hálfnuð með verkefni sín á Norðurlandamóti yngri landsliða í Kisakallio í Finnlandi. Bæði lið hafa þegar lokið við þrjá hörkuleiki á mótinu og standa strákarnir og stelpurnar í ströngu á stóra sviðinu.
Líkt og venjan er á mótinu voru teknar opinberar myndir af liðunum auk þjálfara og fylgdarliðs. Auk þess hefur skapast sú skemmtilega hefð að mynda alla þátttakendur hvers félags sem hefur verið stórskemmtileg viðbót við myndatökuna, enda keppast félögin heima við að kynna sitt landsliðsfólk á samfélagsmiðlum.
Mótið heldur áfram af fullum krafti og fram undan eru tveir gríðarlega mikilvægir lokadagar. Á morgun, þriðjudag, mæta íslensku liðin Danmörku í miklum slag, og á miðvikudaginn lýkur mótinu með leikjum gegn heimadrengjum- og stúlkum í Finnlandi.
Karfan fylgist náið með gangi mála og mun áfram gera mótinu góð skil með umfjöllunum, myndum og úrslitum beint úr Kisakallio.




