spot_img
HomeFréttirMyndasafn: Þór Þorlákshöfn og Fjölnir opnuðu Valsmótið með látum (uppfært)

Myndasafn: Þór Þorlákshöfn og Fjölnir opnuðu Valsmótið með látum (uppfært)

Valsmót karla er hafið í Vodafonehöllinni í Reykjavík en það voru silfurlið Þórs úr Þorlákshöfn og Fjölnir sem opnuðu mótið með spennuslag þar sem Þórsarar mörðu sigur 82-79.
Fjölnismenn fengu tvö þriggja stiga skot í lok leiksins til þess að jafna metin en þau vildu ekki niður og því höfðu Þórsarar sigur. Robert Diggs nýr Bandaríkjamaður í liði Þórs skoraði 27 stig í leiknum og reyndi nokkrum sinnum á burðarþolið í körfum Vodafonehallarinnar.
 
Darrell Flake bætti við 22 stigum hjá Þór og þá var Árni Ragnarsson stigahæstur í liði Fjölnis með 23 stig. Nú stendur svo yfir viðureign heimamanna í Val og Augnabliks.
 

Þá höfðu Valsmenn öruggan 76-64 sigur á Augnablik en heimamenn í Val opnuðu fjórða leikhluta með 18-0 dembu og þar með var björninn unninn. Ragnar Gylfason gerði 14 stig hjá Val og Þorgrímur Guðni Björnsson bætti við 13 stigum. Hjá Augnablik var Jónas Ólason með 23 stig og Leifur Steinn Árnason 17.

Fréttir
- Auglýsing -