Tomasz Kolodziejski fór vopnaður myndavélinni í DHL-Höllina um helgina þar sem KR og Skallagrímur mættust í 16-liða úrslitum kvenna í Poweradebikarnum.
Skallagrímur hafði betur í leiknum, 52-63, og er þar af leiðandi með í bikardrætti 8-liða úrslitanna.
Erikka Banks var stigahæst í liði Skallagríms með 23 stig og 15 fráköst og Sólrún Sæmundsdóttir bætti við 15 stigum, 9 fráköstum og 6 stoðsendingum. Hjá KR var Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir með 19s tig, 12 fráköst og 3 stoðsendingar.
Myndasafn: KR 52-63 Skallagrímur
(Myndir: Tomasz Kolodziejski)