spot_img
HomeFréttirMyndasafn: Öruggt hjá Val gegn Leikni

Myndasafn: Öruggt hjá Val gegn Leikni

 
Valsmenn áttu ekki í vandræðu með að landa tveimur stigum gegn Leikinsmönnum í 1. deild karla í kvöld. Liðin mættust í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda þar sem heimamenn höfðu betur 107-71.
Calvin Wooten fór að venju mikinn í liði Vals með 32 stig og 8 stolna bolta. Næstur Wooten var Alexander Dungal með 17 stig. Hjá Leikni var Sverrir Ingi Óskarsson með 14 stig og Hilmir Hjálmarsson gerði 11.
 
Eftir sigurinn í kvöld er Valur í 5. sæti deildarinnar með 16 stig en Leiknismenn í 7. sæti með 6 stig og nokkuð ljóst að Leiknir, Höttur, Ármann og Laugdælir munu bítast um það að halda sæti sínu í deildinni og eru ekki að fara að taka þátt í úrslitakeppninni í deildinni.
 
Mynd/ Torfi Magnússon: Hörður Helgi sækir að körfu Leiknis í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -