HomeFréttirMyndasafn: Keflavík slapp naumlega í Hafnarfirði

Myndasafn: Keflavík slapp naumlega í Hafnarfirði

Keflvíkingar lögðu Hauka í kvöld eftir framlengdan spennuslag á Reykjanesmóti karla. Lokatölur voru 103-109 Keflavík í vil en staðan var 91-91 að loknum venjulegum leiktíma. Magnús Þór Gunnarsson minnti hressilega á sig þegar allt var komið í járn og sýndi enn eina ferðina að fáir standast honum snúning þegar allt er undir.
Aðeins þremur stigum munaði á liðunum í hálfleik og þannig héldu leikar áfram í síðari hálfleik. Þegar skammt var til leiksloka fóru menn að týnast út af með fimm villur og nánast allt byrjunarlið Keflavíkur fékk fimm villur í leiknum en Snorri Hrafnkelsson, Kevin Glitner, Darrel Lewis og Almar Guðbrandsson fengu allir fimm villur í liði Keflavíkur. Hjá Haukum voru það þrír leikmenn sem fengu fimm villur og því ekki sterkasti hópur liðanna sem kláraði leikinn í kvöld.
 
Í stöðunni 91-91 áttu Haukar síðustu sóknina, skot af endalínunni vildi ekki niður og ekki heldur sóknarfrákastið sem Davíð Páll Hermannsson blakaði í spjaldið, hringinn og út í hendur Magnúsar Þórs sem skaut frá sínum eigin vítateig um leið og leiktíminn rann út og boltinn nálægt því að fara niður. Sjá myndband af skoti Magnúsar.
 
Í framlengingunni byrjuðu Haukar með körfu góðri og villu en Valur Orri og Magnús Þór mættu með tvo þrista, Magnús þann síðari sem kom Keflavík í 99-104 þegar rétt rúm mínúta var eftir af framlengingunni. Eftirleikurinn var Keflavíkur og lokatölur eins og áður segir 103-109 Keflavík í vil.
 
Fín frammistaða hjá Haukum sem þykja líklegir til afreka í 1. deild karla í vetur en að sama skapi sigur hjá Keflavík þó þeir hafi mátt sitja með flesta sína lykilmenn á bekknum í framlengingunni svo einhver er dýptin í Toyota-höllinni.
 
 
Stigahæstu menn
 
Haukar:
Arryon Williams 32 stig og 4 fráköst
Haukur Óskarsson 29 stig
Davíð Páll Hermannsson 13 stig og 6 fráköst
 
Keflavík:
Darrel Lewis 38 stig og 6 fráköst
Kevin Glitner 25 stig
Valur Orri Valsson 10 stig, 5 fráköst og 11 stoðsendingar
Andri Daníelsson 11 stig og 8 fráköst
Fréttir
- Auglýsing -