Þrír leikir fóru fram í 26. umferð Dominos deildar kvenna í dag. Eftir þessa umferð eru einungis tvær eftir af deildarkeppninni og því ljóst að línur eru farnar að skýrast rækilega.
Í Hafnarfirði voru Blikar í heimsókn en ljóst var að Haukar myndu lyfta deildarmeistaratitlinum að leik loknum en titilinn var tryggður eftir sigur á Val í síðustu umferð.
Þrátt fyrir að Haukar hafi verið komnar í 26-6 forystu snemma í leiknum náðu Blikar að koma til baka og sigla 79-82 sigri að lokum eftir æsispennandi lokamínútur.
Haukar fögnuðu hinsvegar deildarmeistaratitlinum eftir leik innilega þrátt fyrir að Blikar hafi gert sitt besta að skemma sigurhátíðina.
Ljósmyndari Karfan.is, Bára Dröfn var á staðnum og náði góðum myndum af fögnuðu Hauka er liðið lyfti bikarnum. Myndasafnið má finna hér.




