Körfuknattleikssamband Íslands fagnaði um helgina 50 ára afmæli sínu í Vetrargarði Smáralindar. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind af þessu tilefni og fékk að spreyta sig með og á móti leikmönnum úrvalsdeildar.
Gamlar kempur litu við sem og upprennandi stórstjörnur. Karfan.is leit einnig við og smellti af meðfylgjandi myndasafni.
Mynd/ Formaðurinn Hannes S. Jónsson og varaformaðurinn Guðbjörg Norðfjörð skemmtu sér vel í Smáralind á afmælisdaginn.




