HomeFréttirMyndasafn: Dagur og Daði með 40 af 87 stigum Stjörnunnar gegn Breiðablik

Myndasafn: Dagur og Daði með 40 af 87 stigum Stjörnunnar gegn Breiðablik

Bræðurnir Daði Lár og Dagur Kár Jónssynir gerðu í kvöld 40 af 87 stigum Stjörnunnar í sigri Garðbæinga gegn Breiðablik í Reykjanesmótinu. Lokatölur voru 87-56 fyrir Stjörnuna en bræðurnir gerðu 20 stig hvor.
Blikar héldu í við Stjörnuna í fyrri hálfleik en Garðbæingar léku án tvíburanna Sigurjóns og Guðjóns og þá voru þeir Justin Shouse og Fannar Helgason ekki heldur í búning en allir fjórir eru að glíma við miserfið meiðsli.
Í síðari hálfleik í Ásgarði í kvöld þegar Dagur Kár Jónsson var kominn með 20 stig í sarpinn var yngri bróður hans Daða Lár skipt inn á og hann gat ekki verið minni maður en stóri bróðir og jafnaði hann að stigum. Daði sýndi lipra takta í kvöld og var beittur á báðum endum vallarins.
 
Hjá Blikum var Þorsteinn Gunnlaugsson manna skæðastur að vanda með 16 stig og 12 fráköst.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -