Toppslagur fór fram í Smáranum í kvöld þegar Breiðablik tók á móti Skallagrím í 1. deild karla. Blikar höfðu nauman 67-62 sigur í leiknum og komust fyrir vikið upp í 4. sæti deildarinnar en nú eru fjögur lið jöfn með 16 stig og færist aukin harka í keppnina um sæti í úrslitakeppni deildarinnar.
Nick Brady var stigahæstur hjá Blikum með 14 stig og Aðalsteinn Pálsson bætti við 12 stigum. Mateuz Zowa var atkvæðamestur í liði gestanna með 14 stig og 14 fráköst og Hafþór Ingi Gunnarsson gerði 12 stig. Þá skoraði Trausti Eiríksson 11 stig fyrir uppeldisfélagið en hann hóf leiktíðina með Fjölni en er nú á venslasamning millum Fjölnis og Skallagríms en Trausti var einnig með 15 fráköst í leiknum.




