spot_img
HomeFréttirMynd: Þessir eru með hæstu einkunnina í NBA 2K18

Mynd: Þessir eru með hæstu einkunnina í NBA 2K18

Eftirsóttasti körfuboltatölvuleikur nútímans NBA 2K kemur út á morgun í nýrri árlegu útgáfunni. NBA 2K18 hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu en grafík leiksins og spilun hefur tekið gríðarlegum framförum síðustu árin. 

 

Framleiðendur leiksins hafa lagt áherslu á að bæta raunveruleikastig leiksins. Grafík leiksins hefur verið bætt enn meira og munurinn á milli tölvuleiksins og raunveruleikans orðin ansi lítill. 

 

Leikmenn í NBA deildinni bíða oftar en ekki fullir eftirvæntingar eftir að vita hvað þeir fá í leiknum á skalanum 0-100. Sumir verða hundfúlir með sína einkunn á meðan aðrir geta vel við unað. Hér fyrir neðan má sjá 10 bestu leikmennina í NBA 2K18 en sitt sýnist hverjum. 

 

Leikurinn kemur út þann 19. september í ELKO en hægt er að forpanta hann inná ELKO.is

 

 

 

Karfan hefur í samstarfi við Elko og Senu ákveðið að gefa eintak af NBA 2K18.

 

Leikurinn kemur út eftir tvo daga, en allar frekari upplýsingar um er að finna í færslu Karfan.is hér fyrir neðan. Vilji fólk ekki taka þá áhættu að vinna sér ekki inn eintak í honum, þá er hægt að versla hana í einni þeirra fjölmörgu Elko verslana sem verða með hann til sölu.

 

Dregið verður í leiknum í næstu viku.

 

Fréttir
- Auglýsing -