spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Munum pottþétt stríða þessum liðum og jafnvel taka einn, tvo sigra

Munum pottþétt stríða þessum liðum og jafnvel taka einn, tvo sigra

Íslenska landsliðið er á lokametrum í undirbúningi sínum fyrir lokamót EuroBasket sem rúllar af stað nú í lok mánaðar. Liðið heldur af landi brott komandi fimmtudag til Litháen, þar sem þeir munu mæta heimamönnum á föstudag, en þaðan mun liðið svo ferðast til Katowice í Póllandi þar sem lokamót EuroBasket mun fara fram.

Liðið hefur verið við æfingar á Íslandi síðustu vikur ásamt því að hafa ferðast í fjóra æfingaleiki, tvo á Ítalíu og tvo í Portúgal.

Búið er að tilkynna hvaða 12 leikmenn það verða sem fara á lokamótið, en það verða þeir sömu og leika gegn Litháen komandi föstudag.

Hér má sjá 12 leikmanna hóp Íslands á EuroBasket 2025

Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í Ásgarði í dag og ræddi við Elvar Már Friðriksson um komandi lokamót, undirbúning liðsins og væntingar fyrir leikina í Póllandi.

Fréttir
- Auglýsing -