spot_img
HomeFréttirMonique Martin mætt í slaginn og verður með gegn Grindavík

Monique Martin mætt í slaginn og verður með gegn Grindavík

06:00

{mosimage}

Meistaraflokkur kvenna hafa endurheimt Monique Martin eftir jólafrí en veikindi í fjölskyldu hennar töfðu fyrir að hún kæmi í tíma.  Monique leikur með KR-stúlkum gegn Grindvíkingum á laugardag í bikarkeppninni.


Laugardaginn 12. janúar leika KR-stúlkur gegn Grindavík á útivelli og hefst leikurinn klukkan 16:00.  KRTV ætla að sýna frá leiknum, ef leyfi og netsamband nást. Monique Martin sem skoraði 34 stig og 21 frákast gegn Grindavík þegar KR-ingar sigruðu í fyrri viðureig liðanna í DHL-Höllinni.  Í tapleik á útivelli 19. desember skoraði Monique 37 stig og tók 14 fráköst þegar KR-stúlkur töpuðu í hörkuspennandi leik 86-84.

Við hvetjum alla til að fjölmenna til Grindavíkur og styðja stelpurnar í baráttunni um að komast í undanúrslit.

www.kr.is/karfa

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -