Ísfirðingar hafa styrkt sig fyrir átökin í Domino´s deild karla en Momcilo Latvinovic hefur samið við félagið. ann útskrifaðist frá New Mexico Highland University núna í vor þar sem hann var með 14.5 stig og 3.5 fráköst í leik. Hann er 198 cm. á hæð og getur spilað flestar stöður á vellinum. Hann er mikil skytta og var með 44% þriggja stiga nýtingu. www.kfi.is greinir frá.
Momcilo er væntanlegur vestur á næstu dögum en í morgun komu þeir B.J. Spencer og Chris Miller Williams vestur. Kristján Pétur Andrésson er svo að jafna sig eftir aðgerð á hné sem hann fór í nýverið og segja Ísfirðingar á heimasíðu sinni vonast til að hann verði kominn til baka fljótt.
www.kfi.is




