spot_img
HomeFréttirMoby Dick synti í fjöru

Moby Dick synti í fjöru

Ekkert verður af því að Michael Craig gangi í raðir Njarðvíkinga en ekki var hægt að fullklára tilskilin leyfi fyrir leikmanninn. Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga staðfesti þetta við Karfan.is í dag. Mun ástæðan vera sú að Craig, sem hafði þegar fengið viðurnefnið Moby Dick hjá Njarðvíkingum, mun ekki standast þær kröfur sem gerðar eru um að leikmenn hafi hreint sakarvottorð.

 
„Nú er bara stanslaust verið að vinna í þessu,“ sagði Teitur um ráðningu á nýjum leikmanni en þetta þýðir að Njarðvíkingar verða án erlends atvinnumanns í kvöld þegar liðið mætir KR í 8-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar. 

Tengt efni: Michael Craig leysir af Simmons í Njarðvík

Fréttir
- Auglýsing -