Alba Berlín þarf að bíða með að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi þýska körfuboltans eftir 81:73 tap gegn Bamberg á útivelli í kvöld. Alba Berlín leiðir nú 2:1 í undanúrslitarimmunni en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslit gegn Bayern. Liðin mætast að nýju á heimavelli Bamberg á laugardaginn.
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson lék í 25 mínútur í liði Alba Berlín í kvöld. Á þeim tíma skoraði hann sjö stig, tók tvö fráköst og átti eina stoðsendingu í leiknum.





