Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í American Airlines Center í Dallas lögðu heimamenn Memphis Grizzlies í botnslag Vesturstrandarinnar. Grizzlies nú búnir að tapa 17 leikjum í röð og sem stendur með versta sigurhlutfall allra þrjátíu liða deildarinnar.
Baráttan í Vesturströndinni sérstaklega jöfn þetta árið. Í kringum 15 leikir eftir af tímabilinu hjá flestum liðum og ennþá skilja aðeins tveir sigurleikir liðið í 4. sæti deildrinnar og það sem er í 10. Sigurleikur Oklahoma City Thunder á San Antonio Spurs því afar mikilvægur, en bæði eru liðin í þessari baráttu.
Spurs þetta tímabilið mögulega ekki einungis að sætta sig við að vinna færri en 50 leiki í fyrsta skipti í 18 ár, heldur eru þeir einnig komnir í mikla hættu á að missa af úrslitakeppninni í fyrsta skipti síðan árið 1998.
Phoenix Suns 115 – 122 Charlotte Hornets
Washington Wizards 102 – 129 Miami Heat
Memphis Grizzlies 80 – 114 Dallas Mavericks
San Antonio Spurs 94 – 104 Oklahoma City Thunder
Orlando Magic 105 – 113 LA Clippers




