spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaMinningarmót Óla Jó á dagskrá 11. til 15. september

Minningarmót Óla Jó á dagskrá 11. til 15. september

Grindvíkingar munu um miðjan september halda sterkt æfingamót fyrir Bónus deild kvenna þar sem ásamt þeirra liði munu mæta til leiks Íslandsmeistarar Hauka, Hamar/Þór og nýliðar KR.

Mótið verður haldið í Grindavík og mun félagið nýta tækifærið og heiðra minningu Ólafs Þórs Jóhannssonar og minnast alls þess sem hann gerði fyrir körfuboltann í Grindavík og á Íslandi öllu.

Dagskrá mótins er eftirfarandi og verða leikirnir í beinni útsendingu á Sýn Sport.

1. dagur – 11. september

Kl:17:30 Grindavík – Hamar/Þór

Kl:19:30 KR – Haukar

2. dagur – 13. september

Kl.15:30 Grindavík – KR

Kl.17:30 Hamar/Þór – Haukar

3. dagur – 15. september

Kl.17:30 Hamar/Þór – KR

Kl: 19:30 Grindavík – Haukar

*Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar

Fréttir
- Auglýsing -