spot_img
HomeFréttirMilwaukee Bucks og Larry Sanders framlengja

Milwaukee Bucks og Larry Sanders framlengja

Milwaukee Bucks eru að ganga frá samkomulagi við einn besta varnarmann deildarinnar, Larry Sanders. Sá endaði næstefstur á lista yfir varinn skot í leik með 2,8 á síðustu leiktíð. 
 
Sanders var einnig með 9,8 stig og 9,5 fráköst sem var umtalsverð framför frá fyrri árum. Hann afrekaði það einnig að láta reka sig í sturtu í þremur leikjum á 10 daga tímabili sem hlýtur að teljast eitthvað met. Þá meðal annars fyrir það eitt að hrósa dómurunum fyrir góð störf – kryddað með örlítilli kaldhæðni.
 
Sanders er engu að síður frábær leikmaður og mikilvægur fyrir Millwaukee Bucks liðið.
 
Fréttir
- Auglýsing -