HomeFréttirMikið undir út um alla Evrópu

Mikið undir út um alla Evrópu

Það er spenna víða fyrir lokaumferðina í undankeppni EuroBasket 2013. Íslendingar halda til Eistlands sem kom á óvart í síðustu umferð og lagði Serbíu á heimavelli og á möguleika á að komast í lokakeppnina og skilja stórlið Serba eftir í fjórða sæti.
 
 
24 þjóðir leika í lokakeppni EuroBasket 2013 sem fer fram í Slóveníu í september á næsta ári. 8 þjóðir þurftu ekki að taka þátt í undakepnninni og eru með örugg sæti en það eru Slóvenía, Makedónía, Frakkland, Bretland, Grikkland, Litháen Spánn og Rússland.
 
Svartfjallaland hefur nú þegar tryggt sér sæti úr A riðli, Þýskaland og Búlgaría úr B riðli, Króatía og Úkraína úr C riðli, Bosnía og Hersegovína ásamt Georgíu úr D riðli, Pólland og Finnland úr E riðli og Ítalía úr F riðli.
 
Þá eru enn 6 sæti eftir. Ekki er enn ljós hvaða lið verður númer 2 í A riðli og ekki heldur í F riðli. Síðustu fjórar þjóðirnar eru svo þær fjórar þjóðir sem ná bestum árangir í þriðja sæti.
 
Í A riðli, riðli Íslands, er Ísrael í 2. sæti núna og fer til Serbíu í lokaleiknum. Ísrael vann fyrri leik liðanna með 13 og Serbar þurfa því að vinna með að minnsta kosti 14 stigum til að komast í annað sætið og vera öruggir í lokakeppnina en þurfa þá að treysta á að Ísland vinni Eistland. Vinni hins vegar Eistland þá þurfa Serbar að vinna Ísrael með 18 stigum. Ísraelskur sigur tryggir þeim annað sætið og vinni Eistar á sama tíma þá eru þeir í þriðja sæti og eiga möguleika á að komast áfram. Tapi Serbar og Eistar verða Serbar í þriðja sætinu.
 
Í F riðli mætast Tyrkir og Tékkar í lokaleiknum og þurfa Tyrkir að vinna með 19 stigum til að ná öðru sætinu en eru alltaf öruggir með þriðja sætið.
 
En á eftir að finna síðustu fjögur liðin, bestu liðin í þriðja sæti.
 
Fari svo að Ísrael endi í þriðja sæti þá eru þeir með 60% sigurhlutfall, Serbar geta endað í þriðja sæti með 50 eða 60% og ef Eistar ná því sæti þá eru þeir með 50%.
 
Í B riðli stendur baráttan milli Azerbaijan og Svíþjóðar. Azerar fara í heimsókn til Þýskalands og Svíar í heimsókn til Lúxemborgar í lokaumferðinni. Svíar verða að vinna og Azerbaijan að tapa til að Svíar komist í þriðja sætið og þá eru Svíar með 50% hlutfall en sigri Azerbaijan þá eru þeir með 63% hlutfall.
 
Í C riðli er Austurríki búið að tryggja sér 3. sætið. Þeir leika á útivelli gegn Króatíu í lokaleiknum en Króatar hafa ekki tapað leik, í Austurríki sigraði Króatía með 7 stigum. En vinni Austurríkismenn þá enda þeir með 50% annars 38%.
 
Í D riðli eru Lettar öruggir með 3. sætið og heimsækja botnlið Rúmeníu í lokaleiknum. Vinni Lettar enda þeir með 63% sigurhlutfall, annars 50%.
 
Í E riðli eru Belgar öruggir með 3. sætið, þeir leika úti gegn Albaníu í lokaleiknum en Albanir hafa tapað öllum leikjunum. Belgar unnu fyrri leikinn með 38 stigum. Sigri Belgar enda þeir í 63% annars í 50%.
 
Í F riðli er baráttan eins og fyrr segir milli Tyrkja og Tékka. Vinni Tékkar enda Tyrkir í þriðja með 50% en vinni Tyrkir með 19 stigum eða meira enda Tékkar í þriðja með 63%, vinni Tyrkir hins vegar með minna en 19 þá enda þeir sjálfir í þriðja með 63%.
 
Þau lið sem eiga möguleika á 63% sigurhlutfalli eru í bestu málunum, það eru Azerbaijan, Lettland, Belgía og Tyrkir eða Tékkar.
 
Það er því ljóst að spennan er gríðarleg á morgun út um alla Evrópu.
 
Fréttir
- Auglýsing -