spot_img
HomeFréttirMike Miller snýr aftur til Memphis

Mike Miller snýr aftur til Memphis

 Memphis Grizzlies og Mike Miller eru að ganga frá samningi og mun hann spila fyrir félagið á næsta leiktímabili. Miami Heat losuðu sig við Miller með Amnesty ákvæði kjarasamnings NBA leikmanna og liða. Miami skulda samt sem áður Miller $12,8 milljónir þrátt fyrir að laun hans telji ekki með í launaþaksútreikningum liðsins fyrir næsta leiktímabil. Miller lék áður með Memphis Grizzlies á árunum 2002-2008.
 
Fréttir
- Auglýsing -