spot_img
HomeFréttirMiðherji til reynslu hjá Fjölni

Miðherji til reynslu hjá Fjölni

 
Fjölnismenn hafa fengið 25 ára gamla miðherjann Andrew Bennett til reynslu en þetta staðfesti Örvar Þór Kristjánsson þjálfari Fjölnismanna við Karfan.is í dag. Bennett er sem fyrr segir 25 ára gamall Breti sem lét í háskólaboltanum með North Georgia ( NCCA 2 ) og útskrifaðist þaðan í vor. Leikmaðurinn hafði orð á sér fyrir að vera harður í horn að taka og mikill baráttujaxl. Kappinn er 205 cm á hæð, 110kg að þyngd og ætti því að nýtast Fjölnismönnum vel í baráttunni í teignum. Karfan.is náði tali af Örvari við þetta tilefni.
,,Andrew er ungur og efnilegur strákur sem var tilbúinn til þess að koma hér til reynslu og áfjáður í að sanna sig. Við rennum því nokkuð blint í sjóinn en bindum vonir við að strákurinn geti styrkt okkur í baráttunni sem framundan er, það er stutt í úrslitakeppnina og stutt í fallsæti.”
 
En hvernig leikmaður er þetta?
 
,,Andrew er stór og mikill sem vonandi styrkir okkur umtalsvert í baráttunni inni í teig. Hann verður líklegast í hóp gegn Haukum og verður fróðlegt að sjá til hans. Þetta er alls ekki einhver “bomba” sem kemur til með að sprengja deildina upp heldur hörku duglegur baráttujaxl sem eykur vonandi styrk okkar undir körfunum,” bætti Örvar við.
Fréttir
- Auglýsing -